Friday, February 2, 2007

Jæja..

Núna eru 18 ár síðan að hún Tinna kom í heiminn. Mjög stolt af henni að ná þessum áfanga. Núna getur hún keypt sígarettur, kannski fengið fullnaðarskírteini, séð um peningamálin sjálf, gert allt sjálf nema já keypt áfangi. Hún getur gift sig en ekki keypt áfengi til að skála í brúðkaupinu. Já við búum í stórfurðulegu landi. Er samt mjög stolt af henni.

Í kvöld verður tekið djamm og eytt miklum pening í mat. Ég fíla það alveg því ég saumaði kjólin sjálf.. eða þann kjól sem ég ætla að vera í í kvöld. Vonum að það gangi upp. Alla vega. Allir að óska henni til hamingju. Strjúka á henni hausinn helst. Hún fílar það mjög vel. Eitthvað fetish eða eitthvað..

Alla vega gleðilegan föstudag og hump day.



Sæta parið.

Kv.
Dagný Ósk

Wednesday, January 31, 2007

Við töpuðum og líf manna stoppar.

Ég horfði á fyrsta HM leik minn í gær. Sem sagt á þessu HM. Leikurinn var þvílíkur. Það var allt í gangi. Mörkin hættu ekki að myndast. Markmennirnir hefðu getað tekið sér hlé því þeir gerðu ekkert gang og vörnin var ekkert að standa sig heldur. Markaskorararnir voru snilld. Þeir voru on a roll. Leikurinn varð svo spennandi að það endaði í jafntefli. Framlenging, fyrri hlutinn endaði í jafntefli, seinni hlutinn varð Dönum í vil. Íslendingar grátandi, að vitum svekktir.

Líf Íslendinga stoppaði. Hvað eiga þeir að gera núna. Systir mín sem er saklausasta manneskja sem ég þekki var farin að blóta Danina frekar en að segja hvað Íslendingar áttu góðan leik. Hvað á fólk núna að gera kl. 5, 7 eða 9 á kvöldin þegar leikirnir voru? Líf þeirra er breyttist.

Í raun og veru finnst mér þetta fyndið. Meira en helmingur þeirra sem horfir á þetta horfir aldrei á handboltaleiki nema HM. Allt í einu hefur öll þjóðin áhuga á þessu. Þegar þeir detta út þá hættir allt að virka.

Almennt hef ég ekki áhuga á handbolta. Keyri ekki niður í Hlíðarenda til að fara á leik. Finnst það bara ekki þess virði. Ég horfði á leikinn í gær og ég tek ofan af fyrir íslenskum leikmönnum því þeir eiga það með fullu skilið. Þeir léku mjög vel í gær. Þeir spiluðu góðan og spennandi leik. Þó það mætti bæta hitt og þetta gerðu þeir þetta vel.

Til hamingju Ísland. Þetta eru okkar leikmenn.


Kv.
Dagný

Tuesday, January 30, 2007

Nýtt blogg og/eða ný hreyfing

Nýja árið var að byrja eða fyrir 30 dögum. Næstum allir farnir að venjast tilfinningunni fyrir 2007. Ég man þegar ég var í skóla kannski 1996 og maður átti að teikna fatnaðinn og faratækin eins og þau myndu verða árið 2000. Sem sagt þegar maður fer útí það þá voru fjögur ár þarna á milli en ég teiknaði alla í svona silfurlituðum spandexgöllum og bíllarnir voru fljótandi í loftinu. Dekk voru því ekki nothæf lengur. Futurama er kannski eitthvað sem ég sá fyrir mér.

Alla vega tímarnir breytast en kannski eins rosalega og ég hafði ímyndað mér. Ég, Tinna og Sigurborg erum komnar með blogg. Núna er árið byrjað að fullu. Árið 2007.

ENJOY IT!!